Þetta Revit grunnnámskeið er fyrir þig sem þarft grunnþekkingu á Autodesk Revit. Byrjað er frá grunni – frá notendaviðmóti yfir í allar helstu aðgerðir sem gera þig tilbúinn til að takast á við eigin verkefni í Autodesk Revit.
Á námskeiðinu er farið yfir:
Notendaviðmót í Revit
Helstu aðgerðir og hvernig þeim er beitt
Grunn skilningur á Building Information Modelling – BIM
Bæta við íhlutum í líkan
Fara um og breyta í líkani
Búa til teikningar
Búa til einfalt verkefni í Revit
Námskeiðið verður haldið frá 13-19.
Boðið verður uppá kaffi/te/vatn og léttar veitingar.
Komdu með þína eigin tölvu með Revit uppsetningu á námskeiðið